9. september 2021 | Sveinn Ragnarsson
Tímabundin niðurfelling gatnagerðargjalda á Reykhólum
Sveitarstjórn samþykkti nýverið að fella niður tímabundið gatnagerðargjöld af lóðum undir íbúðarhús á Reykhólum.
Í reglum um þetta segir:
Markmið reglna þessara er að ýta undir nýbyggingar í sveitarfélaginu. Sveitarstjórn vonast til þess að tímabundin niðurfelling gatnagerðargjalda leiði til aukins framboðs á íbúðarhúsnæði, bæði til eignar og leigu, en ásókn í tilbúnar lóðir hefur verið mjög lítil undanfarin misseri.
Hægt er að sjá reglurnar í heild hér og neðst hér á síðunni