Tenglar

1. maí 2008 |

Tímamót með tilkomu vatnsgeymis í Flatey

Tankurinn settur á sinn stað. (mbl.is)
Tankurinn settur á sinn stað. (mbl.is)

Það var mikið um að vera í Flatey á Breiðafirði í fyrradag þegar Breiðafjarðarferjan Baldur kom með um 45.000 lítra vatnsgeymi í eyjuna. Óhætt er að segja að koma hans marki tímamót fyrir eyjarskeggja, sem hafa oft þurft að búa við vatnsskort yfir heitasta tímann. Baldur hafði einnig meðferðis kranabíl, sem kom tankinum á sinn stað nálægt höfninni. Verkið gekk mjög vel, að sögn Heimis Sigurðssonar, stjórnarformanns Vatnsveitu Flateyjar. Hún er hluti Framfarafélags Flateyjar, sem er félagsskapur húseigenda í eynni.

Að sögn Heimis er ætlunin að Baldur flytji vatn í tankinn yfir sumarið. Í ferjunni eru stórir vatnstankar og dælur og því auðvelt að dæla vatni í land. Heimir segir þetta vera mikla framför, því að nú séu menn ekki lengur bundnir af því hvort hann rigni, auk þess sem gæði vatnsins verði mun meiri en verið hefur. Þá verða flest hús í eyjunni tengd vatnsveitunni eftir breytingarnar, að sögn Heimis.

 

Hingað til, eða frá því vatnsveitan var sett á laggirnar fyrir um fimm árum, hafa eyjarskeggjar safnað vatni í brunna. Síðan hefur vatninu verið dælt í tanka í þorpinu og þaðan hefur því verið dælt í húsin. Það var líka mikil breyting, enda hafa Flateyingar oft þurft að búa við vatnsskort yfir heitasta tímann eins og fyrr segir.

 

(mbl.is)

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31