21. febrúar 2017 | Umsjón
Tjón í Magnússkógum II í rokinu um daginn
Hluti fjárhúsþaksins í Magnússkógum II í Dölum rofnaði og fauk af í veðurofsanum fyrir tæpum tveimur vikum. Ábúendur þar eru nánast hverju mannsbarni í Reykhólahreppi að góðu kunnir, Guðbjörn póstur og Jóhanna kona hans, sem hefur iðulega leyst hann af í póstferðunum á liðnum árum.