Tenglar

5. mars 2013 | vefstjori@reykholar.is

Tófuspjall í Tjarnarlundi

Tófuspjall í Tjarnarlundi.
Tófuspjall í Tjarnarlundi.

Snorrastofa í Borgarfirði og Þaulsetur á Skarðsströnd bjóða upp á tófuspjall í Tjarnarlundi í Saurbæ á fimmtudagskvöld, 7. mars, að loknum mjöltum eða kl. 20.30. Fyrirlesari er Snorri Jóhannesson, bóndi og refaskytta á Augastöðum í Borgarfirði. Í fyrirlestrinum fjallar hann um refinn frá ýmsum sjónarhornum auk mynda. Fyrirlesturinn er hluti fyrirlestraraðar Snorrastofu og sló aðsóknarmet þar þegar húsnæði bókhlöðunnar fylltist svo að varla varð þverfótað fyrir stólum og fólki, segir í tilkynningu.

 

Í lok fyrirlestursins er boðið til kaffidrykkju og síðan umræðna um málefni kvöldsins. Snorrastofa og Þaulsetur hvetja alla áhugasama til að koma og njóta þess að hlusta á áhugavert málefni í meðförum þess sem best til þekkir. Aðgangseyrir er kr. 500.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31