29. júlí 2014 | vefstjori@reykholar.is
Tombóla í þágu Björgunarsveitarinnar Heimamanna
Þessir hressu krakkar á Reykhólum héldu fyrir skömmu tombólu til styrktar starfi Björgunarsveitarinnar Heimamanna í Reykhólahreppi. Afraksturinn varð kr. 2.600 og munar um það, en ekki er síður þakkarverður sá áhugi sem þetta unga fólk sýnir björgunarsveitinni og óeigingjörnum störfum fólksins sem hana skipa.
Ólafia Sig, mivikudagur 30 jl kl: 19:41
Duglegir krakkar og flott málefni ;)