Tenglar

19. september 2013 | vefstjori@reykholar.is

Tónleikar í Reykhólaskóla

Tónleikar verða haldnir í Reykhólaskóla í fyrsta kennslutímanum í fyrramálið, föstudag, klukkan hálfníu. Foreldrar eru velkomnir, en tónleikarnir eru á vegum stofnunar sem ber heitið Skólatónleikar á Íslandi - tónlist fyrir alla. Allt frá árinu 1995 hefur stofnunin staðið fyrir tónleikum í grunnskólum landsins þar sem skemmtun og menntun haldast í hendur. Leitast er við að bjóða upp á fjölbreytta tónlist í hæsta gæðaflokki í flutningi atvinnufólks.

 

Upplifun barnanna af tónleikunum er lykilatriði og áhersla lögð á að hún verði sem allra best, segir á heimasíðu stofnunarinnar.

 

Upphaf þessara skólatónleika á Íslandi má rekja aftur til ársins 1994, þegar íslensku þjóðinni barst peningagjöf frá Norðmönnum í tilefni af 50 ára lýðveldisafmæli Íslands. Skyldu þessir fjármunir notaðir til að efla tónlistar- og menningarstarf í grunnskólum á Íslandi. Skólatónleikar á Íslandi - tónlist fyrir alla er sjálfstætt starfandi stofnun en rekin á vegum Mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31