6. ágúst 2015 |
Tónleikarnir: Frítt fyrir börn með fullorðnum
Varðandi tónleika Svavars Knúts og Kristjönu Stefánsdóttur á Báta- og hlunnindasýningunni á Reykhólum núna í kvöld, fimmtudag, skal tekið fram, að börn eru velkomin frítt í fylgd með fullorðnum. Til sölu verða léttar veitingar. Hlökkum til að sjá sem flesta, segir Harpa Eiríksdóttir framkvæmdastjóri.