Tenglar

13. janúar 2017 | Umsjón

Torfi ráðinn dýraeftirlitsmaður

Sveitarstjórn Reykhólahrepps ákvað í gær að ráða Torfa Sigurjónsson á Reykhólum í starf dýraeftirlitsmanns í verktöku í samræmi við tillögu umhverfis- og náttúruverndarnefndar. Hlutverk hans verður að sjá um eftirlit með framkvæmd samþykktar um hunda- og kattahald frá liðnu hausti, svo sem skráningu dýra, eftirlit með lausagangi hunda í þéttbýli og föngun þeirra og skipulagningu árlegrar dýrahreinsunar.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Jl 2024 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31