4. september 2014 | vefstjori@reykholar.is
Tvær umsóknir um starf hjúkrunarforstjóra
Barmahlíð á Reykhólum.
Umsóknarfrestur um starf hjúkrunarforstjóra á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Barmahlíð á Reykhólum rann út í síðustu viku. Tvær umsóknir bárust og eru til meðferðar hjá Capacent Ráðningum.
Umsækjendurnir eru hjúkrunarfræðingarnir Eyrún Sif Ingólfsdóttir og Helga Garðarsdóttir.