30. nóvember 2011 |
Tveir og hálfur tími á næstu fæðingardeild
Næsta fæðingardeild við Reykhóla er á Akranesi. Vegalengdin á milli er 192 km eða tveggja og hálfs tíma akstur miðað við 75 km meðalhraða. Fram kom í skriflegu svari Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra á Alþingi í gær við fyrirspurn Sigmundar Ernis Rúnarssonar, að sjö byggðasvæði á landinu séu meira en klukkutíma akstur eða meira en 75 km frá næstu fæðingardeild. Það eru Snæfellsnes, Dalasýsla, Barðastrandarsýslur, Strandasýsla, Norðurþing, Vopnafjörður og Vestur-Skaftafellssýsla.
Í svari ráðherrans kemur fram, að konur á Þórshöfn á Langanesi eiga um lengstan veg að fara til að fæða börn á sjúkrahúsi. Þaðan eru um 250 km til Akureyrar og jafnlangt til Neskaupstaðar.
Skriflegt svar Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra á Alþingi