27. mars 2013 | vefstjori@reykholar.is
Tvö laus störf hjá félagsþjónustunni í Reykhólahreppi
Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps auglýsir eftir starfsmanni í afleysingu í félagsstarf aldraðra sem haldið er á Barmahlíð á þriðjudögum. Um er að ræða vinnu út maímánuð ásamt því að viðkomandi þarf að halda utan um sýningu á handverki vetrarins á sumardaginn fyrsta. Viðkomandi þarf að búa yfir þekkingu á handavinnu.
Einnig óskar félagsþjónustan eftir starfsmanni í félagslega heimaþjónustu til að sjá um þrif á einu heimili.
Upplýsingar veitir Hildur Jakobína Gísladóttir félagsmálastjóri í síma 451 3510 og 842-2511 og í netfanginu felagsmalastjori@strandabyggd.is.