Tenglar

6. október 2014 | vefstjori@reykholar.is

Tvö störf auglýst laus til umsóknar

Reykhólahreppur auglýsir laust starf umsjónarmanns Grettislaugar á Reykhólum. Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri og vera samviskusamur og traustur. Starfið felst í umsjón með sundlauginni, rekstri hennar og öryggi laugargesta. Viðkomandi hefur mannaforráð og sér um skipulag vakta og ráðningu starfsfólks í sumarafleysingar. Um er að ræða ca. 50% starfshlutfall að jafnaði. Starfi þessu fylgir mikil ábyrgð. Umsækjandi þarf að kunna hjálp í viðlögum og hafa gilt skírteini frá RKÍ.

 

Einnig auglýsir Reykhólahreppur laust starf sundlaugarvarðar. Um er að ræða hlutastarf í samráði við umsjónarmann. Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri og vera reglusamur og sjálfstæður í starfi. Umsækjandi þarf að kunna hjálp í viðlögum og hafa gilt skírteini frá RKÍ.

Umsóknum skal skilað á skrifstofu Reykhólahrepps við Maríutröð eða í netfangið sveitarstjori@reykholar.is. Umsóknareyðublöð má nálgast hér á vef sveitarfélagsins eða á skrifstofunni. Umsóknarfrestur til 15. október.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31