Tenglar

23. september 2014 | vefstjori@reykholar.is

Umferð hleypt á þverunina yfir Kjálkafjörð

Þverunin í Kjálkafirði á mörkum Reykhólahrepps og Vesturbyggðar. Ljósm. Vegagerðin.
Þverunin í Kjálkafirði á mörkum Reykhólahrepps og Vesturbyggðar. Ljósm. Vegagerðin.

Umferð var hleypt á þverun og brú yfir Kjálkafjörð í síðustu viku og hefur Vestfjarðavegur 60 þar með styst um 4 km. Áfram er unnið að verkinu Eiði-Þverá en að því loknu heyrir 24 km malarkafli sögunni til, en í staðinn verður kominn 16 km uppbyggður nútímavegur. Nú þegar er komið bundið slitlag á stóran hluta. Klæðning var lögð á hluta vegarins fyrr í sumar og einnig var lagt bundið slitlag á þverunina yfir Kjálkafjörð. Enn er eftir að ljúka við þverun yfir Mjóafjörð. Verkinu verður að fullu lokið eftir eitt ár eða síðsumars 2015.

 

Myndin sem hér fylgir var tekin um hálfum mánuði áður en bundið slitlag var lagt á þverunina yfir Kjálkafjörð og umferð hleypt á hana. Í Kjálkafirði eru mörk Austur- og Vestur-Barðastrandarsýslu og jafnframt mörk Reykhólahrepps og Vesturbyggðar.

 

Þetta kemur fram hér á vef Vegagerðarinnar. Þar er einnig að finna kort og fleiri myndir og tengil á frekari upplýsingar um framkvæmdina.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31