4. maí 2015 |
Umhverfisdagur Reykhólahrepps á laugardag
Reykhólahreppur stendur fyrir sínum árlega umhverfisdegi núna á laugardag, 9. maí. Allir íbúar hreppsins eru hvattir til að taka þátt í deginum og fegra sitt nánasta umhverfi. Mæting verður við Reykhólaskóla kl. 11 og síðan leggja allir sitt af mörkum við að snyrta opin svæði í nágrenni Reykhóla. Kl. 14 býður svo Reykhólahreppur þátttakendum upp á grillaðar pylsur í Hvanngarðabrekku (Kvenfélagsgarði).
Látum ekki okkar eftir liggja!
- Umhverfisnefnd Reykhólahrepps.