Tenglar

3. maí 2017 | Sveinn Ragnarsson

Umhverfisdagur Reykhólahrepps laugardag 13. maí

 

Laugardaginn 13. maí ætlar Reykhólahreppur að standa fyrir umhverfisdegi. Allir íbúar hreppsins eru hvattir til að taka þátt og fegra sitt nánasta umhverfi.

Þeir Reykhólabúar sem ætla að taka til hendinni mæta við Reykhólaskóla kl. 11.00 þar sem verður ákveðið hvað tekið verður fyrir, svo leggja allir sitt af mörkum við að snyrta opin svæði í nágrenni Reykhóla.
Kl.14.00 mun svo Reykhólahreppur bjóða þátttakendum upp á grillað kjöt og pylsur í Hvanngarðabrekku (Kvenfélagsgarði).

 

 Látum ekki okkar eftir liggja.

 

 Umhverfisnefnd Reykhólahrepps

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31