Tenglar

28. maí 2011 |

Umhverfisdagur í Reykhólahreppi

Reykhólahreppur stendur fyrir umhverfisdegi í dag, laugardag. Allir íbúar hreppsins eru hvattir til að taka þátt í verkefninu og fegra sitt nánasta umhverfi. Jafnframt er fólk hvatt til að leggja sitt af mörkum við að snyrta opin svæði í nágrenni Reykhóla. Ábúendur lögbýla eru hvattir til að taka plast úr girðingum, hreinsa skurði og annað tilfallandi. Kl. 13.30 mun svo Reykhólahreppur bjóða þátttakendum upp á grillaðar pylsur í Hvanngarðabrekku (Kvenfélagsgarðinum) á Reykhólum.

 

Núna á þessu ári stefnir umhverfisnefnd Reykhólahrepps að því að velja snyrtilegasta lögbýli hreppsins. „Látum ekki okkar eftir liggja“, segir í hvatningarorðum frá umhverfisnefnd.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31