6. maí 2013 | vefstjori@reykholar.is
Umhverfisdagurinn - vinnufúsar hendur óskast
Hinn árlegi Umhverfisdagur verður á fimmtudag, 9. maí, og hvetur umhverfis- og náttúruverndarnefnd Reykhólahrepps íbúana til að nota daginn og snyrta í kringum sig. Ætlunin er að hittast í Reykhólaskóla kl. 11 og skipta með sér verkum í þorpinu. Gámastöðin verður opin og eru eigendur á iðnaðarsvæðinu og þar í kring hvattir til að nota daginn vel og nýta tímann þegar opið er. Grill og Svalar að loknu verki kl. 14.
Sig.Torfi, mivikudagur 08 ma kl: 10:45
"LIKE" á þetta...