Tenglar

6. maí 2016 |

Umhverfisdagurinn: Allir sem vettlingi geta valdið

Frá umhverfisdeginum 2014.
Frá umhverfisdeginum 2014.

Á það skal minnt sem hér hefur komið fram, að umhverfisdagurinn árvissi í Reykhólahreppi er á morgun, laugardag. Að venju er hvatt til hreinsunar bæði í þorpinu og sveitunum. Hvað Reykhólaþorp og nánasta umhverfi þess varðar, þá hefur verið ákveðið að hittast í skólanum kl. 11 og skipta með sér verkum.

 

Þátttakendur í þessu skemmtilega vorverkefni og uppeldisverkefni hafa jafnan verið á ýmsum aldri, sem vettlingi getur á annað borð valdið. Sjá t.d. í bláhorninu efst til vinstri á meðfylgjandi mynd, sem tekin var á umhverfisdeginum fyrir tveimur árum.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31