Tenglar

24. september 2015 |

Umhverfisverðlaun 2015: Óskað eftir tilnefningum

Ferðamálastofa auglýsir eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna fyrir árið 2015, en verðlaunin hafa verið veitt árlega frá 1995. Tilgangurinn er að beina athygli að þeim ferðamannastöðum eða ferðaþjónum sem sinna umhverfismálum í starfi sínu og framtíðarskipulagi.

 

Hverjir koma til greina sem verðlaunahafar?

Allir þeir sem tengjast ferðamálum og láta sig umhverfismál varða og vinna markvisst að því að viðhalda jafnvægi milli efnahagslegra, náttúrlegra og félagslegra þátta geta komið til greina. Það geta verið einstaklingar, fyrirtæki eða félagasamtök.

 

Hvernig er tilnefnt?

Aðilar geta tilnefnt hvort sem er sjálfa sig eða önnur fyrirtæki eða félög. Fylla þarf út einfalt form á vef Ferðamálastofu, þar sem fram kemur eftir hverju er leitað og hvaða atriði þurfa að vera í lagi þegar ferðaþjónar eru tilnefndir. Tilnefningar þurfa að hafa borist fyrir kl. 12 þann 16. október, en verðlaunin verða afhent á Ferðamálaþingi 2015 á Akureyri 28. október.

 

Lesa meira

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31