Tenglar

10. mars 2010 |

Umhverfisvottaðir Vestfirðir?

Aðalfundur Ferðamálasamtaka Vestfjarða verður haldinn á Hótel Núpi í Dýrafirði laugardaginn 17. apríl og stefnir í mikla dagskrá í tengslum við hann. Kvöldið áður verður stefnumótunarskýrslan kynnt en verið er að leggja lokahönd á hana um þessar mundir. Vel yfir 100 manns komu að vinnu við hana á fundum víðs vegar um Vestfirði. Eftir aðalfundinn á laugardagsmorgni hefst síðan heilmikil ráðstefna undir yfirskriftinni Umhverfisvottaðir Vestfirðir. Þar halda erindi helstu sérfræðingar landsins um þennan málaflokk og ræða hann út frá öllum sviðum. Umhverfisráðherra hefur boðað komu sína á fundinn.

 

Vonast er til að þessi ráðstefna verði til þess að í framhaldinu muni Vestfirðingar ræða í fullri alvöru kosti þess að taka upp umhverfisvottun fyrir svæðið. Bundnar eru vonir við það að Fjórðungssamband Vestfirðinga taki við boltanum og stýri framhaldsvinnunni í góðri samvinnu við sveitarfélög, fyrirtæki, stofnanir og íbúa í fjórðungnum.

 

Dagskrá aðalfundarins og ráðstefnunnar verður kynnt ítarlega innan tíðar.

 

- Frá Ferðamálasamtökum Vestfjarða.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31