„Umræðan um atkvæðavægið er á villigötum“
„Í dag eru þingmenn í landsbyggðarkjördæmum í minnihluta á Alþingi og hefur svo verið frá því að núverandi kjördæmaskipan var leidd í lög. Með tillögum Stjórnlagaráðs er alveg ljóst að enn myndi að miklum mun fækka þeim þingmönnum sem bæru hagsmuni landsbyggðarinnar sérstaklega fyrir brjósti.“
Þetta segir Einar Kristinn Guðfinnsson, þingmaður NV-kjördæmis, í grein sem hann sendi vefnum til birtingar. Tilefnið er þjóðaratkvæðagreiðslan varðandi nýja stjórnarskrá, sem fram fer um aðra helgi.
Einnig segir hann:
„Í umræðunni um kjördæmaskipan og kosningafyrirkomulag er keyrð algjör einstefna. Menn geta svo sem svarað því þannig, að sú staða sem landsbyggðin hefur á Alþingi hafi ekki dugað vel. Og rétt er það. Mikið vantar á að hlutur landsbyggðarinnar sé sá sem hann þyrfti að vera.
En dettur einhverjum lifandi manni það í hug, að það yrði í þágu hagsmuna landsbyggðarinnar að veikja pólitíska stöðu hennar, veikja raddir hennar og þar með möguleikann á baráttunni fyrir bættum hag?“
Grein Einars Kristins í heild er að finna undir Sjónarmið í valmyndinni hér vinstra megin undir fyrirsögninni Umræðan um atkvæðavægið er á villigötum.