Umsókna leitað um styrki til atvinnumála kvenna
Hægt er að sækja um styrki til gerðar viðskiptaáætlunar (kr. 300.000), styrki til markaðssetningar (innanlands eða erlendis), vöruþróunar , hönnunar eða efniskostnaðar. Auk þess geta konur sem hafa nýlega stofnað fyrirtæki, en hafa ekki hafið rekstur, eða eru að stofna fyrirtæki, sótt um styrk til að koma fyrirtækinu í framkvæmd (launastyrkur) og getur sá styrkur numið allt að tveimur milljónum króna. Með þeirri umsókn þarf að fylgja fullgerð viðskiptaáætlun og skilyrði er að fyrirtækið hafi ekki byrjað rekstur.
Hægt er að sækja um styrk fyrir allt að 50% af kostnaði verkefnis. Ekki er hægt að sækja um styrki vegna stofnkostnaðar, rekstrarkostnaðar eða framkvæmda.
Sótt er um rafrænt á heimasíðu verkefnisins www.atvinnumalkvenna.is. Umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar. Nánari upplýsingar um reglur og umsóknir má finna á heimasíðunni og hjá Ásdísi Guðmundsdóttur í síma 582 4914. Einnig má senda fyrirspurnir í netfangið atvinnumalkvenna@atvinnumalkvenna.is.
Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða