Tenglar

26. nóvember 2009 |

Umsóknarfrestur hjá Húsafriðunarsjóði að renna út

Frestur til að sækja um í Húsafriðunarsjóði vegna ársins 2010 rennur út 1. desember. Á vef sjóðsins er að finna nánari upplýsingar og umsóknareyðublað. Tilvonandi umsækjendur eru hvattir til að kynna sér gögnin og hefjast handa við gerð umsókna í tæka tíð.

 

Samkvæmt heimasíðu Húsafriðunarsjóðs er hlutverk hans skilgreint í 17. gr. laga um húsafriðun (104/2001). Hlutverk sjóðsins er að veita styrki til viðhalds og endurbóta á friðuðum húsum og mannvirkjum. Heimilt er að veita styrki til viðhalds annarra húsa en friðaðra, sem að dómi Húsafriðunarnefndar hafa menningarsögulegt eða listrænt gildi. Sjóðnum ber að stuðla að byggingarsögulegum rannsóknum og útgáfu rita um þær.

 

Hér má finna reglur um úthlutun úr Húsafriðunarsjóði

 

Menningarráð Vestfjarða

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31