17. apríl 2009 |
Umsóknarfrestur til Menningarráðs að renna út
Frestur til að sækja um styrki við fyrri úthlutun Menningarráðs Vestfjarða á þessu ári til menningarverkefna á Vestfjörðum rennur út á miðnætti í kvöld. Reynslan hefur verið sú, að um 60% umsókna kemur á síðasta degi. Rafrænt umsóknarblað, leiðbeiningar og úthlutunarreglur að finna á vef Menningarráðs Vestfjarða á slóðinni www.vestfirskmenning.is. Allar nánari upplýsingar gefur menningarfulltrúi Vestfjarða, Jón Jónsson, í síma 891 7372 og netfanginu menning@vestfirdir.is.
Sjá einnig:
09.04.2009 Styrkir til menningar og lista á Vestfjörðum
24.11.2008 Arnarsetrið fær myndarlegan stuðning