Umsvifamesti dagur Reykhóladaganna
Viðamesta og fjölbreyttasta dagskrá Reykhóladaganna er á morgun, laugardag, og stendur allt frá klukkan níu að morgni og fram á rauðanótt. Byrjað verður á hlaupinu, fjórar vegalengdir (nægir alveg að labba), bolir og medalíur. Síðan er dráttarvélarall, fjögurra tíma kaffihlaðborð (þar sem Jói í Skáleyjum ríður net), karnival í Hvanngarðabrekku, skottsala (Jóhanna Ösp veit allt um hana), uppboðið mikla á Seljanesi, grillveisla og brekkusöngur í Hvanngarðabrekku þar sem Skúli Gautason er veislustjóri, barnaball með Sniglabandinu, Happy Hour á Báta- og hlunnindasýningunni og loks stórdansleikur með Sniglabandinu.
Sérstaklega skal á það minnt, að Hólabúð er opin laugardag kl. 10-21 og sunnudag kl. 13-18.
Nánar hér: Dagskrá Reykhóladaganna 2016