11. nóvember 2016 | Umsjón
Unga fólkið og framtíðarsýn fyrir heimasvæðið
Skráningarfrestur á kynningar- og umræðufund fyrir ungt fólk um sameiginlega framtíðarsýn fyrir Dalabyggð, Reykhólahrepp og Strandabyggð rennur út núna á sunnudaginn, 13. nóvember. Fundurinn verður í Reykjavík á fimmtudag. Hann er ætlaður fólki á aldrinum 16-30 ára frá sveitarfélögunum þremur, sem býr á höfuðborgarsvæðinu eða þar í grennd eða er statt á þeim slóðum. Ungmenni sem annað hvort búa í þessum sveitarfélögum eða annars staðar á landinu eru að sjálfsögðu hjartanlega velkomin líka.