21. maí 2013 | vefstjori@reykholar.is
Ungir sem aldnir á breiðfirskum Degi aldraðra
Eins og myndirnar hér bera með sér fór því fjarri að einungis aldrað fólk hafi sótt hinn árlega Dag aldraðra hjá Breiðfirðingafélaginu syðra fyrir skömmu. Að vanda var á borðum veglegt kaffihlaðborð, sem er sameiginlegt verkefni Félags breiðfirskra kvenna, stjórnar og skemmtinefndar Breiðfirðingafélagsins og Breiðfirðingakórsins.
Til skemmtunar auk þess að koma saman í góðra vina hópi með sameiginlegar rætur vestra var söngur Breiðfirðingakórsins og einnig spilaði Kristófer Ari á sítru. Fagnaðurinn var mjög vel sóttur.
Miklu fleiri myndir er að finna á vef Breiðfirðingafélagsins.