11. apríl 2019 | Sveinn Ragnarsson
Ungmennaþing á Reykhólum
Ungmennaþing verður haldið í félagsmiðstöðinni 15. apríl kl. 18:30. Ungmennaþing er fyrir ÖLL ungmenni 13 - 25 ára.
Sveitarstjórn, mennta- og menningarmálanefnd og stjórn ungmennafélagsins Aftureldingar er boðið á þingið.
Þema þingsins er viðburðir í sveitarfélaginu fyrir ungt fólk.