8. mars 2014 | vefstjori@reykholar.is
Unique Westfjords?
Markaðsstofa Vestfjarða hefur verið að skoða möguleika þess að kynna Vestfirði í afþreyingarkerfi í flugvélum Icelandair. Aðrir landshlutar hafa verið með kynningar í vélunum um skeið og má hér sjá innslagið frá Suðurlandi. „Þessar landshlutakynningar fá mikið áhorf í vélunum, sem og á netinu,“ segir í frétt frá Markaðsstofunni.
„Ljóst er að til þess að geta verið með kynningu frá Vestfjörðum þurfa ferðaþjónustufyrirtæki að koma með í verkefnið, endilega hafið samband ef þið hafið áhuga á þessum möguleika,“ segir þar einnig.
Hafið samband í síma 450 3000 eða í netfanginu travel@westfjords.is.