Tenglar

12. nóvember 2012 |

Unnið að umhverfisvottun Vestfjarðakjálkans

Skilti með merki EarthCheck.
Skilti með merki EarthCheck.

Sveitarfélögin á Vestfjörðum tóku í síðustu viku stórt skref til framtíðar, að margra áliti, með aðild að EarthCheck, og hafa nú byrjað vinnu sem miðar að því að umhverfisvotta öll sveitarfélögin níu á Vestfjörðum. Með þessu eru sveitarfélögin að skuldbinda sig til þess að taka mið af náttúrunni í öllum ákvörðunum sínum og tryggja sjálfbærni þeirra auðlinda sem til staðar eru á svæðinu.

 

Verkefnið er unnið af Fjórðungssambandi Vestfirðinga en hugmyndin kemur upprunalega frá Ferðamálasamtökum Vestfjarða, sem sýnt hafa verkefninu mikinn áhuga. Umhverfisvottun hefur verið eitt af viðfangsefnum síðustu tveggja Fjórðungsþinga og greinilegur áhugi sveitarstjórnafulltrúa á málefninu.

 

Í upphafi þessa árs fékkst fjárstyrkur frá umhverfisráðuneytinu vegna undirbúningsvinnu fyrir Umhverfisvottaða Vestfirði og það er með þeim styrk sem þetta fyrsta skref hefur verið tekið.

 

EarthCheck eru viðurkennd vottunarsamtök sem hafa höfuðstöðvar sínar í Ástralíu og einu vottunarsamtökin sem hafa umhverfisvottað starfsemi sveitarfélaga.

 

Á Íslandi er fyrirtækið Grænir hælar umboðsaðili fyrir EarthCheck. Það er rekið af Guðrúnu Bergmann sem hefur starfað að umhverfismálum, umhverfisvænni ferðaþjónustu og umhverfisráðgjöf í meira en 20 ár. Guðrún vann einnig náið með Snæfellingum þegar sveitarfélögin þar fengu vottun frá EarthCheck.

 

EarthCheck

Grænir hælar

 

Sjá einnig:

22.07.2011 Stefnt að umhverfisvottun alls Vestfjarðakjálkans

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31