Tenglar

9. desember 2015 |

Uppbyggingarsjóður: Auglýst eftir umsóknum

Nú er í annað skipti auglýst eftir styrkumsóknum til Uppbyggingarsjóðs Vestfjarða, sem rekinn er innan vébanda sóknaráætlunar landshlutans og er í umsjón Fjórðungssambands Vestfirðinga. Uppbyggingarsjóður veitir styrki til menningarverkefna, atvinnuþróunar og nýsköpunar, auk stofn- og rekstrarstyrkja til menningarstofnana. Sjóðurinn varð til með samningi ríkis og Fjórðungssambands Vestfirðinga um Sóknaráætlun Vestfjarða 2015-2019, sem undirritaður var 10. febrúar 2015. Frestur fyrir umsóknir er til föstudagsins 22. janúar.

 

Veittir verða stofn- og rekstrarstyrkir til menningarstofnana, verkefnastyrkir til menningarmála og verkefnastyrkir til atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna. Hægt er að sækja um styrki til allt að þriggja ára, en vakin athygli á að framkvæmda- og fjárhagsáætlanir þurfa að miðast við þann tíma sem sótt er um styrk til. Skila verður umsóknum á þar til gerðu umsóknareyðublaði sem er að finna ásamt frekari upplýsingum og úthlutunarrreglum á vef Fjórðungssambands Vestfirðinga – www.vestfirdir.is/Uppbyggingarsjodur.

 

Samþykkt hefur verið að árið 2016 verði litið sérstaklega til verkefna sem uppfylla eitt eða fleiri eftirfarandi skilyrða:

  1. Verkefni sem efla nýsköpun og atvinnuþróun á svæðinu og stuðla að stofnun nýrra fyrirtækja sem byggja á nýsköpun, einnig vöru- og gæðaþróun í starfandi fyrirtækjum.
  2. Verkefni sem stuðla að nýsköpun, fjölbreytni og aukinni fagmennsku í menningarstarfi.
  3. Verkefni sem fjölga eða styðja við atvinnutækifæri á sviði lista og menningar.
  4. Verkefni sem efla samstarf á sviði menningarmála á svæðinu.
  5. Verkefni sem styðja við uppbyggingu og eflingu menningartengdrar ferðaþjónustu.
  6. Verkefni sem skapa viðskiptatækifæri og verðmæti á sviði skapandi greina.
  7. Verkefni sem skapa störf fyrir háskólamenntaðar konur eða stuðla að fjölbreyttari atvinnutækifærum fyrir ungt fólk á svæðinu.
  8. Atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni sem auka útflutningstekjur eða eru gjaldeyrisskapandi.
  9. Atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni á sviði líftækni.
  10. Verkefni sem byggja á samstarfi fyrirtækja og rannsóknaraðila, þ.m.t. háskólastofnana.

Hægt er að hafa samband og senda umsóknir rafrænt á netfangið uppbygging@vestfirdir.is. Starfsmenn Fjórðungssambands Vestfirðinga veita ráðgjöf við gerð umsókna í Uppbyggingarsjóð og sama gildir um starfsmenn Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31