9. september 2014 | vefstjori@reykholar.is
Uppskeruhátíð UDN haldin á Reykhólum
Lokahóf Ungmennasambands Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga (UDN) í frjálsum íþróttum og fótbolta verður haldið í og við íþróttahúsið á Reykhólum á fimmtudag, 11. september, og hefst fagnaðurinn kl. 19. Þetta er uppgjör sumarsins og meðal annars fer fram afhending
- viðurkenninga fyrir góða mætingu á æfingar og mót
- þátttökuverðlauna fyrir mætingu á kvöldmót
- viðurkenninga fyrir besta afrek karla og besta afrek kvenna í sumar
- viðurkenningar fyrir mestar framfarir milli ára
Allir fá plagg með árangri ársins í hinum ýmsu greinum samanborið við síðasta ár.
Grillið verður heitt. Hver og einn sér um mat fyrir sig og sína. Leikir og fjör. Spjall, kaffi og te og kósíheit.
Sjáumst!
- Arnar, Herdís Erna, Hanna Sigga og Guðni Albert.