Uppskrift: Rabarbarapæ frá Árbæjarkonum
Rabarbarakökukeppni var meðal dagskrárliða á Reykhóladögum 2013. Kökurnar sem bárust voru til sýnis og smökkunar í skólanum og voru alls 73 gestir sem fengu sér bita. Árbæjarkonur fengu verðlaun fyrir bragðbestu kökuna en Sigrún Kristjánsdóttir fyrir þá flottustu. Verðlaunin sem þær Árbæjarkonur fengu var karfa af bökunarvörum frá Kötlu. Sigrún fékk gjafabréf frá Rjómabúinu Erpsstöðum í Dölum.
Uppskriftin:
Rabarbarapæ frá Árbæjarkonum
200 g rabarbari
50 g sykur
Soðið saman í potti og síðan hellt í botninn á eldföstu móti.
200 g niðurskorin epli eru sett þar ofan á.
½ dl hveiti
2 egg
2½ dl sykur
Eggin og sykurinn þeytt saman og hveitinu síðan sáldrað út í. Þetta er svo sett yfir eplin í forminu.
2½ dl hveiti
2½ dl púðursykur
80 g smjör
Mulið saman og sáldrað yfir allt saman.
Bakað við 200°C í 45 mínútur.
Því má hnýta við, að nokkrir tugir ljósmynda frá Reykhóladögum hafa bæst við í myndasyrpurnar hér á vefnum – það borgar sig að auglýsa! Syrpa nr. 3 hefur verið fyllt og syrpu nr. 4 bætt við, en í hverri þeirra eru 27 myndir. Sjá Ljósmyndir, myndasöfn - Myndasyrpur - Reykhóladagar 2013 (1, 2, 3 og 4) í valmyndinni hér vinstra megin. Myndirnar 108 í þessum fjórum syrpum eru úr ýmsum áttum og myndasmiðirnir margir.
Vefnum hefur þó ekki áskotnast mynd af fallegustu rabarbarakökunni sem Sigrún Kristjánsdóttir var verðlaunuð fyrir. Hér með er auglýst eftir henni!