Tenglar

8. janúar 2016 |

Uppsprettuvatnið dýrara en mjólkin

Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, skrifar á Facebooksíðu sinni um verðlagningu á einum lítra af mjólk og einum lítra af vatni í Hagkaupum í Kringlunni og birtir mynd með, því til staðfestingar. Lítri af vatni kostar 165 krónur en lítri af mjólk 142 krónur. Sindri skrifar:

 

Alltof oft líta menn framhjá þeirri staðreynd að stærstur hluti stuðnings við landbúnað er til að greiða niður búvörur til neytenda.

 

Í umræðunni virðist það oft vera þannig að með stuðningi við bændur sé verið að rétta bændum einhverja dúsu.

 

Í sumarlok fór ég í Hagkaup í Kringlunni (verslun Haga) og skoðaði verð á ýmsum vörum. Það var fróðlegt að bera saman verð á einum lítra af mjólk annars vegar og átöppuðu vatni án kolsýru og bragðefna hins vegar.

 

Niðurstaðan er athyglisverð. Mjólkin kostar 142 kr/ltr en vatnið kostar 165 kr/ltr. Semsagt einn lítri af vatni kostar 23 krónum meira en mjólkin.

 

Verðið sem bændur fá er 84 kr/ltr og verð frá MS til smásöluverslana fyrir lítrafernu að hámarki 121 kr/ltr. (mögulega aðeins ódýrara hjá Högum). Ef öllum stuðningi hins opinbera vegna mjólkurframleiðslu er deilt niður á innanlandsframleiðsluna reiknast stuðningur 47kr/ltr.

 

Þetta lítur því svona út:

Bóndi: 84 kr + 47 kr = 131 kr.

Hagkaup: 121 kr + álagning + vsk = 142 kr.

 

Er þetta ekki ágæt vísbending um það hvernig stuðningi við mjólkurframleiðslu er varið?

 

Það er ekki flókið mál á Íslandi að tappa vatni á flöskur. Það er auðvitað ekki fyrirhafnarlaust, en við eigum sem betur fer gnægð af vatni. Til samanburðar tekur nærri 30 mánuði að rækta upp mjólkurkú, frá því að móðirin er sædd og þar til að afkvæmi hennar fer sjálft að mjólka. Allan þennan tíma þarf að huga að þörfum gripanna upp á hvern einasta dag, afla fóðurs og tryggja viðunandi húsakost og beitiland.

 

Það verður því ekki dregið í efa að framleiðsla á einum lítra af mjólk kostar talsvert meiri vinnu og fyrirhöfn en að tappa einum lítra af vatni á flösku.

 

Einhverjir kynnu að velta því fyrir sér hvort sinna þurfi átöppun vatns alla daga ársins, hvort sem er á aðfangadagskvöldi eða að morgni nýársdags?

 

Frá þessu er greint á vef Bændablaðsins.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31