24. apríl 2013 | vefstjori@reykholar.is
Úrslit í spurningakeppninni og sveitaball
Lið Breiðfirðingafélagsins og Norðfirðingafélagsins keppa í kvöld, síðasta vetrardag, til úrslita í Spurningakeppni átthagafélaganna. Rimman eins og allar fyrri umferðir fer fram í Breiðfirðingabúð við Faxafen í Reykjavík (fyrir ofan Bónus). Síðan verður slegið upp sveitaballi þar sem barinn verður opinn. Átthagafélögin hvetja fólk til að koma á ballskónum í Breiðfirðingabúð og kveðja veturinn saman.
Verð aðgöngumiða á keppnina og ballið er kr. 500. Ef aðeins er komið á ballið, sem hefst kl. 22, er verðið kr. 1.500.
Höfundur spurninga og dómari er sem fyrr Gauti Eiríksson kennari frá Stað í Reykhólasveit.
Sjá nánar:
12.04.2013 Spurningakeppnin: Breiðfirðingafélagið komið í úrslit