31. maí 2014 |
Úrslitin birt í kvöld
Kjörfundur í sveitarstjórnarkosningunum í Reykhólahreppi, sem skv. auglýsingu átti að standa til kl. 17, var framlengdur eins og heimilt er þegar nauðsyn telst krefja. Talning í óhlutbundnum kosningum (persónukosningum) eins og voru núna í Reykhólahreppi rétt eins og verið hefur síðari ár, er langtum tímafrekari en þar sem listakosningar eru. Niðurstöður úr kosningunum í dag, sem og skoðanakönnuninni um afstöðu til sameiningar við önnur sveitarfélög*), verða birtar hér á vef Reykhólahrepps þegar þær liggja fyrir í kvöld.
*) Ath., breyting á frétt: Varðandi skoðanakönnunina, þá verður ekki talið fyrr en eftir helgi.
Hjalti Hafþórsson, laugardagur 31 ma kl: 20:32
Það er mér persónulega mikið ánægjuefni að sjá aftur nafn okkar frábæra vefstjóra undir fréttaskrifum. Hlynur minn Reykhólavefurinn ert þú. Með þökkum fyrir allt.