3. september 2021 | Sveinn Ragnarsson
Utan kjörfundar atkvæðagreiðsla í Flatey
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna kosninga til Alþingis 25. september 2021.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar í Flatey á Breiðafirði í Reykhólahreppi fer fram mánudaginn 6. september nk. í búðinni í Frystihúsinu milli kl. 13:30 og 14:30.
Þeir kjósendur sem greiða ætla atkvæði hafi með sér skilríki.
Ísafirði, 3. september 2021.
Jónas B. Guðmundsson
sýslumaður