10. nóvember 2010 |
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna kosninga til stjórnlagaþings hinn 27. nóvember er hafin hjá sýslumanninum á Patreksfirði. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar í Reykhólahreppi verður auglýst sérstaklega hér á vef Reykhólahrepps en kosið verður á skrifstofu hreppsins. Nánari upplýsingar veitir sýslumaður í síma 450 2200.
Sjá frekari upplýsingar undir Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í reitnum Tilkynningar hér neðst til hægri.