21. apríl 2013 | vefstjori@reykholar.is
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á Reykhólum
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar í Reykhólahreppi vegna komandi þingkosninga verður á morgun, mánudag, milli kl. 12 og 14. Kosningin fer fram á skrifstofu Reykhólahrepps við Maríutröð (sjá nánar hér). Kjörfundurinn í Reykhólahreppi í kosningunum á laugardag verður hins vegar ekki á Reykhólum heldur í Bjarkalundi og stendur frá kl. 10 til 18.
Kjörskráin í Reykhólahreppi liggur frammi á skrifstofu hreppsins á Reykhólum á skrifstofutíma fram á kjördag. Fólk er beðið að athuga hvort það er skráð á réttum stað á kjörskránni. Leiðrétt verður ef svo er ekki og athugasemdir eru gerðar í tæka tíð.