7. apríl 2009 |
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á Reykhólum í dag
Kosning utan kjörfundar vegna Alþingiskosninganna 25. apríl verður hjá sýslumanni á skrifstofu Reykhólahrepps við Maríutröð á Reykhólum í dag, þriðjudaginn 7. apríl, frá klukkan 12 á hádegi til klukkan 15. Sýslumaðurinn á Patreksfirði, Úlfar Lúðvíksson, verður einnig að öðru leyti til viðtals á sama stað og tíma.