15. júní 2016 |
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla – breyting
Vegna vorferðar heimilisfólks í Barmahlíð hefur dagsetning atkvæðagreiðslu utan kjörfundar á Reykhólum vegna kjörs forseta Íslands verið færð til um einn dag. Auglýst hafði verið að hún yrði á þriðjudaginn í næstu viku, en núna hefur verið ákveðið að hún verði (bæði á skrifstofu Reykhólahrepps og á Dvalarheimilinu Barmahlíð) miðvikudaginn 22. júní kl. 18-19. Tímasetningin varðandi Flatey er óbreytt. Þar verður kosið utan kjörfundar í frystihúsinu kl. 14-15 á mánudag, 20. júní.
Breytt auglýsing um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar í umdæmi Sýslumannsins á Vestfjörðum.