Tenglar

29. janúar 2010 |

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hafin

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 6. mars 2010 er hafin hjá sýslumanninum á Patreksfirði. Hægt er að kjósa á skrifstofutíma kl. 8.30-12 og 13-15.30 virka daga. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar í Reykhólahreppi verður auglýst sérstaklega á ákveðnum dögum hér á heimasíðu Reykhólahrepps en kosið verður á skrifstofu hreppsins. Nánari upplýsingar veitir sýslumaður í síma 450 2200.

 

Kjósanda sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar er heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi nema hann eigi kost á að greiða atkvæði á stofnun. Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans og hafa borist kjörstjóra eigi síðar en kl. 16 fjórum dögum fyrir kjördag eða eigi síðar en kl. 16 þriðjudaginn 2. mars 2010.

 

Kjósandi sem vill greiða atkvæði utan kjörfundar skal gera kjörstjóra grein fyrir sér með því að framvísa persónuskilríkjum.

 

Þá er vakin athygli á að einnig er hægt að kjósa utan kjörfundar hjá öðrum sýslumönnum.

 

Þetta kemur fram í auglýsingu frá sýslumanninum á Patreksfirði.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31