Tenglar

25. júní 2010 |

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í Reykhólahreppi

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar í Reykhólahreppi verður auglýst sérstaklega á ákveðnum dögum hér á heimasíðu Reykhólahrepps (www.reykholar.is) en kosið verður á skrifstofu Reykhólahrepps á Reykhólum. Nánari upplýsingar veitir sýslumaður í síma 450 2200. Kjósanda sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar er heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi nema hann eigi kost á að greiða atkvæði á stofnun.

 

Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans og hafa borist kjörstjóra eigi síðar en kl. 16 fjórum dögum fyrir kjördag eða eigi síðar en kl. 16 þriðjudaginn 20. júlí.

 

Sjá nánar auglýsingu sýslumanns um utankjörfundaratkvæðagreiðslu.

 
Sjá hér auglýsingu um uppkosningar 24. júlí 2010.
 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31