Tenglar

5. apríl 2011 |

Útleiga á sumarrekstri í Reykhólaskóla

Reykhólahreppur óskar eftir tilboðum frá áhugasömum sem vilja taka að sér sumarrekstur í Reykhólaskóla sumarið 2011. Leigutími er frá 1. júní til 25. ágúst. Húsnæðið sem reksturinn gæti tekið til er gamla heimavistin í skólanum, íþróttahúsið, borðsalur skólans og tvö eldhús. Allur búnaður sem fyrir er fylgir, þ.e. borð, áhöld og borðbúnaður og dýnur í rúmum. Þegar eru bókanir í gistingu í sumar. Hægt verður að vera með veitingarekstur í skólanum skv. leyfi fyrir gistirými í III. flokki.

 

Um er að ræða verkefni til að fjölga atvinnutækifærum og bæta þjónustu í sveitarfélaginu. Hreppsnefnd áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

 

Allar upplýsingar veitir Ingibjörg B. Erlingsdóttir sveitarstjóri í síma 434 7880.

 

Umsóknir skulu berast bréflega eða í netfangið sveitarstjori@reykholar.is.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31