29. mars 2011 |
Útleiga á sumarrekstri í Reykhólaskóla
Reykhólahreppur óskar eftir tilboðum frá áhugasömum sem vilja taka að sér sumarrekstur í Reykhólaskóla sumarið 2011. Leigutími er frá 1. júní til 25. ágúst. Húsnæðið sem reksturinn gæti tekið til er gamla heimavistin í skólanum, íþróttahúsið, borðsalur skólans og tvö eldhús. Allur búnaður sem fyrir er fylgir, þ.e. borð, áhöld og borðbúnaður og dýnur í rúmum. Þegar eru bókanir í gistingu í sumar. Hægt verður að vera með veitingarekstur í skólanum skv. leyfi fyrir gistirými í III. flokki.
Um er að ræða verkefni til að fjölga atvinnutækifærum og bæta þjónustu í sveitarfélaginu. Hreppsnefnd áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Allar upplýsingar veitir Ingibjörg B. Erlingsdóttir sveitarstjóri í síma 434 7880.
Umsóknir skulu berast bréflega eða í netfangið sveitarstjori@reykholar.is fyrir 5. apríl.
Þóra Mjöll, mivikudagur 30 mars kl: 14:36
En sniðugt, löngu tímabært :)