Tenglar

23. september 2011 |

Vakning um endurbyggingu húsa í Vesturbyggð

Reisugildi öðru sinni að Aðalstræti 50 á Patreksfirði (í fyrra sinn árið 1925).
Reisugildi öðru sinni að Aðalstræti 50 á Patreksfirði (í fyrra sinn árið 1925).
1 af 3

„Mikil vakning hefur orðið í Vesturbyggð um endurbyggingu gamalla húsa“, segir Magnús Ólafs Hansson atvinnuráðgjafi á Patreksfirði. Í dag er reisugildi vegna Stúkuhússins við Aðalstræti 50 á Patreksfirði, sem byggt var árið 1925 en er nú í eigu Freys Héðinssonar og Steinunnar Finnbogadóttur. Í sumar byrjuðu Hjalti Hafþórsson og Ingibjörg Birna Erlingsdóttir á Reykhólum á endurbyggingu hússins Hóla við Mikladalsveg á Patreksfirði eins og hér var greint frá ásamt myndum og jafnframt eru a.m.k. fimm hús í endurbyggingu á Bíldudal.

 

Stúkuhúsið á Patreksfirði ber það nafn vegna þess að Stórstúka Góðtemplarareglunnar á Íslandi átti það á sínum tíma. Stefnt er að því að þar verði kaffihús.

 

Myndirnar af og úr Stúkuhúsinu tók Magnús Ólafs Hansson.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31