Tenglar

5. febrúar 2016 |

Vald, peningar, spilling

Kristinn H. Gunnarsson.
Kristinn H. Gunnarsson.

Rúmum sjö árum eftir gjaldþrot íslenska fjármálakerfisins er fjarri því komið á jafnvægi og sæmileg sátt um stóru málin. Það sést best á mælingum á fylgi stjórnmálaflokkanna. Gamlir og grónir flokkar eða arftakar þeirra eiga allir í miklum vandræðum og njóta lítils fylgis, en nýr flokkur eykur stöðugt fylgi sitt og nálgast nú 40% fylgi. Vissulega eru þetta enn sem komið er aðeins kannanir, en það fer ekki á milli mála að kjósendur eru afar óánægðir með núverandi og síðustu stjórnarflokka og eru að setja fram ákveðnari kröfu en áður um breytingar.

 

Þetta segir í upphafi greinar sem Kristinn H. Gunnarsson sendi vefnum til birtingar undir fyrirsögninni hér fyrir ofan. Síðan segir hann m.a.:

  • Í rúmt ár hefur þessi þróun verið, og með hverjum mánuðinum sem líður verður krafan um breytingar skýrari að því leyti, að hefðbundnu stjórnmálahreyfingarnar fá samanlagt æ minna fylgi og óhefðbundni flokkurinn fær meira fylgi. Nú er svo komið að Sjálfstæðisflokkurinn er farinn að fá minna en 20% og Framsóknarflokkurinn, Samfylkingin og Vinstri grænir eru hver um sig um það bil 10% flokkur.
  • Þessi staða á sér engin fordæmi í 100 ára sögu íslenska flokkakerfisins. Fylgið við nýja flokkinn, Pírata, er að einhverju leyti byggt á frammistöðu þingmanna hans og því að flokkurinn svarar að einhverju leyti kröfum um breyttar málefnaáherslur og starfshætti.
  • En líklega er samt stærsta skýringin á fylgi þeirra, enn sem komið er, megn óánægja með „gömlu“ flokkana. Meðan þeir skynja ekki kröfur kjósenda og gera ekki trúverðugar breytingar á stefnu sinni og forystusveit munu allar líkur benda til stórfelldrar fylgissveiflu í næstu Alþingiskosningum í takt við skoðanakannanirnar.

Grein Kristins í heild má lesa hér og undir Sjónarmið í valmyndinni vinstra megin.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Desember 2024 »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31