31. desember 2010 |
Varasamt endurskinsmerkjaleysi á Reykhólum
Að gefnu tilefni skal minnt á notkun endurskinsmerkja þegar bæði börn og fullorðnir eru gangandi á ferð á götum í skammdeginu. Enda þótt götur í sjálfu þorpinu á Reykhólum séu upplýstar kemur iðulega fyrir að fólk er á gangi endurskinsmerkjalaust í myrkri og það er mjög slæmt. Miklu verra er þetta samt þar sem lýsing er engin, eins og á efsta kafla Hellisbrautar upp að Hólakaupum. Líka hefur ítrekað komið fyrir í vetur að ekið hefur verið fram á börn röltandi í hóp í svartamyrkri á miðjum veginum fyrir neðan þorpið áleiðis niður í Þörungaverksmiðju þar sem engin lýsing er. Forðumst slysin!
Halla Valda, laugardagur 01 janar kl: 21:06
Mig langar líka ad benda fólki a ad virda hradatakmarkanir mjog algeng sjón ad sja fólk keyra allt of hratt hér.Kvedja Halla