7. janúar 2016 |
Varðandi áskrift að tímaritinu Breiðfirðingi
Eins og hér hefur komið fram er vinnan við næsta hefti af tímaritinu Breiðfirðingi (Nýjum Breiðfirðingi) komin vel á veg. Svavar Gestsson er ritstjóri eins og í fyrra. Þeir sem vilja gerast áskrifendur eru beðnir um að skrá kennitölu, nafn og heimilisfang á heimasíðu Breiðfirðingafélagsins (Hafa samband) eða senda upplýsingarnar í tölvupósti í netfangið bf@bf.is.
Fyrsta prentun af tímaritinu á síðasta ári (fyrsta hefti Nýs Breiðfirðings) seldist upp á skömmum tíma.
Nýr Breiðfirðingur: Annað heftið í undirbúningi