Tenglar

29. desember 2012 |

Veðurtjón gæti hafa orðið mun víðar en vitað er

Vera má að tjón á mannvirkjum hafi orðið mun víðar í Reykhólahreppi en nú er vitað. Samkvæmt heimildum fréttavefjar Reykhólahrepps er núna á tíunda tímanum að kvöldi þetta vitað um tjón á mannvirkjum öðrum en raflínum:

 

Á Gillastöðum fór þak af hálfri fjárhúskró, hluti af þakklæðingu á íbúðarhúsinu í Borg, hlaða í Hólum var farin að gefa sig, þak rofnaði á hlöðu á Reykhólum sem notuð hefur verið fyrir fé, og eitthvert tjón mun hafa orðið á Skerðingsstöðum.

 

Veðrið hefur verið þannig í dag að menn hafa átt í erfiðleikum með að komast milli íbúðarhúss og útihúsa og jafnvel ekki treyst sér tíu metra spöl í næsta útihús. Vegna veðurofsans hefur engin leið verið að standa í björgunarstörfum, auk þess sem ekki er auðhlaupið á milli staða í blindbyl.

 

Veður í Reykhólasveit er nú tekið að lægja lítið eitt en á móti hefur bætt í snjókomuna.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31